Ég á litla frænku
Þessi mynd var tekin í sumar af henni Önnu mágkonu minni, fyndið við þessa mynd er ekki búningurinn heldur að ég er að halda á ungbarni, málið ég hef aldrei haldið á einu svona og það sést líka á svipnum og hvernig ég held á litlu frænku..
Ég fékk gleðifréttir í dag.. einsog allir vita þá hætti ég skóla, var ekki að fíla mig í þessu og mér fannst ég ekki vera tilbúinn í þetta nám og hafði ekki nógu mikla reynslu en þetta ákvaði ég fyrir nokkrum vikum og er búinn að vera atvinnulaus síðan, sótti um nokkrar vinnur á netinu t.d hjá fyrirtæki sem heitir Nova og fékk svar hjá þeim í síðustu viku um að koma í viðtal á mánudaginn semsagt í gær, ég fór þarna í þetta viðtal og hitti þetta fína fólk þarna og sat fyrir svörum.. ég var þarna í 15 mín, persónulega fannst mér hafa klúðrað þessu algjörlega þegar ég var á leiðinni út, hristi hausinn og var mjög svekktur út í sjálfan mig... 5 min seinna fæ ég símtal um að koma í annað atvinnuviðtal eftir 2 tíma uppí smáralind, ég drífi mig niður á hlemm og tek tvistinn og mæti þarna 10 min fyrr og hitti manninn sem var þarna yfir og ég tek í höndina á honum og kannaðist soldið við kauða hann segir við mig "Dóri er það ekki?" jújú það passar "Vissi það, ég man eftir þér þegar þú varst 17 ára gutti með spangir og stóðst í markinu hjá Bí88" LOL hugsaði ég en þessi maður heitir Emil og spilaði með Úlfunum og ÍH en þetta skiptir engu máli en þarna sat ég í klukkutíma og ræddi við hann um boltan og þessa spennandi vinnu.. nóg um þetta ég hringdi í hann í dag og fékk vinnuna... ég er orðinn þjónustufulltrúi hjá símanum og mun vinna í útbúinu í smárlind, byrja á föstudaginn.. ég er bara lifandi dæmi um það að maður þarf enga menntun til að komast af í lífinu! Biggi vill meina að ég hafi fengið þessa vinnu útaf því ég er í boltanum, veistu biggi þú ert DICK!! ég fékk hana útaf því ég er heillandi manneskja! og mjög myndarlegur.
Sjúgðu á mér tillann Biggi