Alltaf jafn óheppin!
óheppnin eltir mig þessa dagana. ég er semsagt ný komin á Egilsstaða þar sem boltinn er kominn á fullt þessa dagana en ég náði að slasa mig eftir 2 daga veru hérna á Egilsstöðum, fór nefnilega í handbolta uppá djókið og þegar ég var að skjóta á markið small eitthvað í öxlinni og útkoman var mjög slæm tognun í öxlinni og blæddi inná bísefa! ég get ekkert notað höndina og ég sem er markmaður og málari að atvinnu er þetta mjög slæmt, vinnutapið er rosalegt þar sem ég á engan pening og er að berjast um sæti í liðinu:( ég er semsagt 2 vikur frá og það er ekkert að gera hérna á egilsstöðum nema hanga inní herbergi og horfa á sjónvarpið og hanga á netinu og éta gífurlega magn af verkjatöflum!! ekki að meika það að hanga í 2 vikur.. svona er lífið maður!